11.4.2008 | 02:58
Samdráttur allstaðar
Nema í ráðherraliðinu sem eru nýjustu meðlimir þotuliðsins. Of flott á því til þess að fljúga í sömu vélum og almenningur, of flott til þess að vera hérna heima og stjórna landinu. Þá er sýndarmennskan vegna löngunar ISG að koma okkur í öryggisráðið, með öllum ráðum, og hvað sem það kostar okkur. Flandrast út um víða veröld og tala við réttu mennina, hvar sem er. Allt nema það að reyna að bæta kjör þeirra sem eiga varla til hnífs og skeiðar, í þessu fyrrverandi landi velmegunarinnar. Svo eru það skuldsettu heimilin, þar sem unga fólkið hefur keypt sér íbúðir á 100% lánum, það verður ekki auðvelt þegar fólk fer að missa húsnæði sitt í stórum stíl. Neikvæð eign, er veruleiki margs ungs fólks í dag. Við verðum að kveða verðbólgudrauginn niður strax, á morgun gæti það verið of seint fyrir margt ungt fólk.
Þjóðarnauðsyn að hemja verðbólgu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enn og aftur spái ég að fólk flýi land.
Hólmdís Hjartardóttir, 11.4.2008 kl. 08:05
Hafðu ljúfa helgi Elskuleg
Brynja skordal, 11.4.2008 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.