3.5.2008 | 02:56
Ekki bara í Reykjavík
Ég hef aldrei verið eins dugleg að grisja trén í garðinum mínum, ég þurfti að vísu að klippa jólatréð í garðinum mínum frekar mikið vegna tíðra storma í vetur, margar risastórar greinar brotnuðu og þurfti að fjarlægja þær í vor. Svo á ég frekar myndarlegt Birkitré í miðjum garðinum mínum sem var farið að taka allt of mikið pláss, það var grisjað í fyrsta skipti í 17 ár. Ég og börnin mín klipptum trén fyrir rúmum mánuði síðan. Enn þann dag í dag lekur vökvi úr Birkitrénu, eftir klippingu snemma í vor. Ég vona að trén dafni vel í sumar. Jarðaberin og Rabbabarinn eru vöknuð til lífsins núna.
Mun meiri garðaúrgangur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Innlitskvitt
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 3.5.2008 kl. 18:58
Dugnaður á þínum bæ Hafðu ljúfan sunnudag mín kæra
Brynja skordal, 4.5.2008 kl. 00:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.