12.8.2008 | 02:38
Ég er að leita að tannlækni!!!
Tannlæknirinn minn sem ég hafði í rúm 30 ár, dó í fyrra og leita ég mér að nýjum tannlækni. Hann/hún verður að vera sanngjarn í verðlagningu. Ég fékk tilboð frá einni tannlæknaþjónustu þegar minn gamli dó, en ég hef ekki efni á því að vera viðskiptavinur þeirra. Þar kostar 15-20 þúsund bara að opna munninn. Veistu um einhvern ódýran og sanngjarnan tannlækni sem tekur nýja viðskiptavini? Endilega láttu mig vita.
Ein sparsöm og hagsýn húsmóðir
Athugasemdir
Gunnar Dyrset er sanngjarn
Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 02:41
Ok skoða það á morgun Takk fyrir ábendinguna
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.8.2008 kl. 02:42
Ég hef aldrei borgað honum meira en 5000 í einu
Hólmdís Hjartardóttir, 12.8.2008 kl. 02:45
Ekki veit ég um neinn sem er sanngjarn. Tannlæknarnir hér á Selfossi eru sko rándýrir get ég sagt þér. Ætli maður tékki ekki bara sjálfur á þennan Gunnar sem Hólmdís er að benda hér á.
Knús á þig krúttan mín.
Tína, 12.8.2008 kl. 11:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.