27.8.2008 | 02:11
Elli kerling læðist að mér
Ég er ekki frá því að elli kerling sé að læðast aftan að mér.
Ég er orðin þreytt miklu fyrr, bara í fyrra hafði ég þrek til þess að vaka til 3.30 til 4.00 á hverri nóttu. Nú er öldin önnur, ég er að lognast útaf og klukkan ekkert orðin.
Ein sybbin
Athugasemdir
Nei...nei.....þú ert bara farin að líkjast venjulegu fólki
Hólmdís Hjartardóttir, 27.8.2008 kl. 09:33
Ég kannast við þetta. Ef sólarhringurinn hjá mér væri ekki öfugsnúinn vegna veikinda þá væri ég dottin fyrir miðnætti....... gamli vökustaurinn
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 27.8.2008 kl. 11:29
Ha ha, að heyra í þér, þú ert bara algjör B-manneskja og lífstíllinn þinn ýtir undir það..... svona rétt eins og hjá mér. Ég er oft geyspandi klukkan 17 og 18, en tel mig þó ekkert vera að nálgast elli kellingu.....
Lilja G. Bolladóttir, 27.8.2008 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.