8.10.2008 | 02:42
Það skall á mig eitt ár á miðnætti
Ég er búin að ákveða það að eftir tvö ár þegar ég verð fimmtug ætla ég að vera í betra formi en ég er í núna. Ég ætla að vera dugleg að hreyfa mig, duglegri en ég hef verið undanfarin ár. Svo ætla ég að borða léttari og betri mat. Ég ætla líka að reyna að standa mig betur í húsverkunum, ég er búin að vera allt of löt. Svo ætla ég bráðum að hætta að kaupa smjör, ég ét smjör með öllu í dag.
Ein sem vonast til að grennast og hressast.
Athugasemdir
Heyr heyr verðum flottar á 50tugs Afmælinu En innilegar hamingju óskir með Afmælið dúlla vonandi færðu góðan afmælisdag Elskuleg
Brynja skordal, 8.10.2008 kl. 03:06
Til hamingju mín kæra
Passaðu þig á smérinu
Einar Örn Einarsson, 8.10.2008 kl. 09:10
það er sjálfgert að þú grennist í kreppunni
Hólmdís Hjartardóttir, 8.10.2008 kl. 22:58
Eins og talað út úr mínu hjarta. Við yngjumst bara og besnum á þessum síðustu og .... tímum, það dugar ekkert annað. Til hamingju með daginn
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 8.10.2008 kl. 23:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.