9.10.2008 | 01:59
Eru tjallarnir alveg tjúllaðir
Það er nú meira hvað þessir bretar eru reiðir við okkur, þeir tóku vel á móti íslenskum fjárfestum og hafa ábyggilega margir bretar þakkað Íslendingunum það að hafa vinnu. En þegar á móti blæs, verður allt vitlaust. Ætli þetta séu víkíngaofsóknir, erum við íslendingar ekki alltaf í víking einhversstaðar annarsstaðar en hérna heima. Ég er farin í fílu við tjallana, og tala bara íslensku næst þegar tjalli kemur á barinn minn
Hryðjuverkalög gegn Landsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
DO æsti þá svona upp
Hólmdís Hjartardóttir, 9.10.2008 kl. 02:08
Ég er líka farin í fýlu við tjallana, ég þoli ekki stafsetningarvillur. Þegar ég les yfir það sem ég hef skrifað, verð ég að leiðrétta mig.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.10.2008 kl. 02:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.