22.10.2008 | 01:43
Að kyssa vöndinn
Ekki líst mér á það að taka lán frá tjöllunum, er það ekki undirlægjuháttur ef við tökum lán hjá þeim? Er ekki skárra að taka lán frá einhverjum vinveittum þjóðum eða Alþjóða gjaldeyrissjóðnum? Eða hvað? Þurfum við kannski að taka lán frá hverjum sem vill lána okkur á þessum síðustu og verstu tímum? Er framtíð okkar Íslendinga að verða öreigar sem verðum skuldsett í marga áratugi? Börn okkar og barnabörn hneppt í þrældóm eða skuldafangelsi?
580 milljarða lán frá Bretum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Áhugaverður leiðari í DV í gær. http://www.dv.is/leidari/2008/10/21/skuldafangelsi-heillar-kynslodar/
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.10.2008 kl. 01:57
Já, þú spyrgð margs, Jóna mín, og því miður get ég ekki svarað og fæ höfuðverk af því að hugsa um margt af því sem þú ert að velta fyrir þér.... og sem ég líka er að velta fyrir mér......
Ég er búin að vera svolítið dofin undanfarið, eins og örugglega margir, en vil frekar en að kommenta á færsluna þína, bara segja þér að mér þykir vænt um að eiga þig sem bloggvin. Ég er ekki búin að vera dugleg við að kíkja á "vini" mína hérna, en vona að eitt lítið "rafrænt" knús nægi í dag - vildi með sanni alveg gefa það alvöru.....
Vona að þú hafir það sem allra allra best.....
Lilja G. Bolladóttir, 22.10.2008 kl. 02:19
vonandi birtir eitthvað til
Hólmdís Hjartardóttir, 22.10.2008 kl. 09:21
Knús kveðjur til ykkarog ljúfar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.10.2008 kl. 15:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.