27.10.2008 | 02:18
Ég er sammála
Það væri móðgun við okkur Íslendinga ef tjallarnir koma hingað til heræfinga í vetur. Þeir eru óvinaþjóð okkar í dag, þjóðin sem varð þess valdandi að allt fór á versta veg hérna í íslenska bankakerfinu/hagkerfinu. Ég vil slíta stjórnmálasambandi við tjallana og líka að við segjum okkur úr Nato. Ein herská
Móðgun ef Bretarnir koma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
nema að við kyrrsetjum þoturnar..............
Hólmdís Hjartardóttir, 27.10.2008 kl. 02:25
Heh taka þær uppí skuldir tjallarnir skulda okkur stórfé sem tapast hefur í aðgerðum þeirra vegna bankanna
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.10.2008 kl. 02:31
við gætum nýtt okkur það mun betur ef þeir koma með þoturnar. ættum að heimta að íslenskir flugmenn væru með í eftirlitsferð og fengum að læra á þessar þotur í leiðinni. verst að það er ekki sæti fyrir tvo eða er sæti fyrir tvo í þessu. það væri allavega gaman fyrir íslendinga að prufa þessi skrímsli.. við eigum flugmenn sem hafa flogið svona fuglum. T.d. sonur Gunnars Vélstjóra ofl. og ég segi ekki meir. ég vil samt frekar að það verði staðsettar alþjóðlegar björgunar þyrlur á hverju landshorni. sem myndu heita í höfuð höfuðskeppna skjaldamerkis. ég fór einmitt með þá hugmynd í Landsbankann í upphafi einkavæðingar að landsbanki. myndi sinna því að leggja í björgunarþyrlu sjóð... nei... þeir fóru í útrás. með engar varnir.
Garðar Þór Bragason, 27.10.2008 kl. 02:40
hafðu það gott í dag ljúfan
Tína, 27.10.2008 kl. 08:16
Knús knús þú átt duglega dóttir
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 27.10.2008 kl. 13:52
Sko ef við stoppum þetta ekki af þá fríka ég út. Djöfuls rugl.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.10.2008 kl. 16:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.