1.11.2008 | 01:09
Lygarar
Hverju á maður að trúa, Geir Haarde virtist koma af fjöllum, þegar atburðarrásin hrun íslensku bankanna hófst. Það virðist vera langur aðdragandi að þessu hruni og löngu fyrirsjáanlegt. En samt var ekki brugðist við. Engar ráðstafanir gerðar til þess að minnka skaðann. Bara lygar um það að allt væri í lagi og útrásin alveg í besta lagi. Ég trúi því að margar lögsóknir verði gerðar á hendur íslendinga vegna þess að enginn tók í taumana, á meðan það var hægt.
Ein sem þolir ekki lygara.
Geir aðvaraði Brown í apríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki trúi ég GHH svo mikið er víst
Hólmdís Hjartardóttir, 1.11.2008 kl. 01:11
Núna síðustu stundir eru að koma upp á yfirborðið staðreyndir um allskonar hluti sem ríkisstjórnin, fjármálaeftirlitið og seðlabankinn áttu að sjá fyrir. Þeir sváfu á verðinum og ættu að segja af sér.
Við hin sitjum í súpunni - og nauðbeygð öxlum við þeirra ábyrgð.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 1.11.2008 kl. 01:31
Ég var nú að hugsa í kvöld, hafa þessir menn sagt satt orð undanfarin ár? Ég stórlega efast um það.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.11.2008 kl. 01:33
Þessi ríkisstjórn ..... Geir finnst allaf að það sé ekki tímabært að tjá sig.... áhyggjuefni
DoctorE (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 02:04
Geir finnst það í lagi að halda marga blaðamannafundi og segja nákvæmlega ekkert, eftir fyrsta blaðamannafundinn þar sem hann bað okkur íslendingum guðs blessunar. Var ég eins og kind úti á hól, ég var engu nær um það hvað væri í gangi.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.11.2008 kl. 02:22
Hafðu ljúfa helgi elskuleg
Brynja skordal, 1.11.2008 kl. 14:14
Ég fór á útifund og hlustaði á einhvern Óskar sjúkraliða, frábær ræðumaður.
Sigurður Þórðarson, 2.11.2008 kl. 00:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.