2.12.2008 | 02:21
Ætli þetta virki?
Það voru mögnuð orðin hjá henni Evu Hauksdóttur í þessari vargastefnu. Ef svona galdur virkar þá fáum við væntanlega fljótlega að sjá árangurinn. Ég mætti á þjóðfundinn á Arnarhóli ásamt frumburðinum. Við erum friðsamir mótmælendur og vorum við farnar þegar ráðist var til inngöngu í Seðlabankann. Ég var smá hissa að sjá ungt fólk með sundgleraugu á mótmælafundinum, en svo allt í einu þegar ég skoðaði fréttirnar á ml.is í kvöld skildi ég hversvegna unga fólkið var með sundgleraugun, það var náttúrulega fólkið sem fór inn í seðlabankann og var tilbúið að mæta piparúða lögreglunnar.
Ein friðsöm, sem vill spillinguna burt
Vargastefna við Stjórnarráð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Varstu búin að sjá þetta?
Beturvitringur, 2.12.2008 kl. 02:27
JÁ þau sniðug að vera með sundgleraugu
Hólmdís Hjartardóttir, 2.12.2008 kl. 02:35
Nei, takk fyrir þetta myndband. Ég var að vinna í allt kvöld.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.12.2008 kl. 02:37
Sjáumst á laugardaginn......með sundgleraugu
Sigrún Jónsdóttir, 2.12.2008 kl. 07:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.