14.12.2008 | 02:47
Plís ekki lána okkur meira
Íslensk stjórnvöld hafa skuldsett okkur alveg nóg, það á eftir að taka okkur áratugi að losna út úr skuldasúpunni.
Kæru útlendingar ekki lána Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu meiri peninga, þau kunna ekki að fara með þá. Losum okkur frekar við sitjandi stjórn, og reynum að fá hæft, óspillt fólk til starfa fyrir okkur. Fólk sem vinnur fyrir okkur sem borgum launin þeirra. Ekki borgar fjárfestingarliðið skatta, nema 10% fjármagnstekjuskatt. Þau borga ekki tekjuskatta né útsvar til bæjarfélaganna þar sem þau búa.
Burt með spillingaröflin, og stjórnina.
Lánsloforð Rússa til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
alveg hjartanlega sammála
Elíngunnur Birgisdóttir, 14.12.2008 kl. 02:56
Einmitt -bara borga mér og þér núna. Við kunnum betur með þetta að fara...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 14.12.2008 kl. 03:15
já best að fá þetta bara beint
Hólmdís Hjartardóttir, 14.12.2008 kl. 14:49
....og milliliðalaust
Sigrún Jónsdóttir, 15.12.2008 kl. 01:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.