28.12.2008 | 03:36
Kreppan á leiðinni
Börnin mín hafa spurt mig um kreppuna og ég hef sagt þeim að kreppan sé ekki komin. En hún er á leiðinni, hennar mun gæta í janúar eða í febrúar. Ég hef lifað kreppur af og þykist ég geta lifað þessa kreppu líka. Það er annað með margt ungt fólk, sem hefur aldrei þurft að neita sér um neitt. Ég hef áhyggjur af því fólki. Fólki sem hefur verið alið upp í allsnægtum, hvernig það bregst við því að hafa ekki peninga fyrir öllu. Óvissutímar eru framundan hjá okkur Íslendingum. Ég hef verið dugleg að mæta á flesta mótmælafundina, en ég er hissa á fólki sem er á móti mótmælunum. Hvernig ætlar þetta fólk að lifa, bara borga þegjandi það sem fellur á það? Ég er ósátt við stjórnina, þingmenn, bankastjórana, og fjármálaeftirlitið. þessvegna mæti ég á mótmælafundi sem haldnir eru á hverjum laugardegi. Ég vil að spillingarliðið komi sér burt, ekki seinna en strax. Ein mótmælaglöð.
Athugasemdir
Sæl Jóna.
Ég er stoltur af þér. Og þetta krepputal er ekki mikið fyrir okkur sem höfum lifað margt en að verður erfiðra fyria aðra. það er bara að taka því sem að höndum ber og gera sitt besta.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.12.2008 kl. 04:41
Jóna, ég ber virðingu fyrir fólki eins og þér.....þú hugsar
Sigrún Jónsdóttir, 28.12.2008 kl. 09:49
Jólakvitt og ljúfar kveðjur:):):)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.12.2008 kl. 19:44
heyr heyr
Hólmdís Hjartardóttir, 28.12.2008 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.