24.1.2009 | 01:22
Ég hlustaði tvisvar á viðtalið
Og ég skil ekki upphlaupið sem varð vegna þessa viðtals. Las fólk bara þessa villandi frétt og lét móðan mása? Ég stend með Herði og mótmælafundunum, og mun mæta á morgun eins og undanfarna 15 laugardaga. Ég ætla að hlusta á ræðumennina á morgun þær Katríni Snæhólm og Hildi Helgu, ég hlakka til þess að heyra hvað þær hafa að segja. Lifi eldhúsáhaldabyltingin.
Hænuskref í rétta átt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já Jóna mín, Skinhelgin skýtur víða upp kollinum þessa dagana.
Varðandi morgundaginn þá held ég að Guðmundur Andri verði þriðji ræðumaður, sem er ekki slæmt.
Ein sem á að vera að skrifa ræðu...
Hildur Helga Sigurðardóttir, 24.1.2009 kl. 01:31
Gangi þér vel með ræðuskrifin
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.1.2009 kl. 01:45
Vildi að ég gæti mætt á morgun, en ég er að vinna til kl. 16:00 og get ekki hætt fyrr. Óska ræðumönnum góðs gengis og hlakka til að heyra hvað þau sögðu.
Sigrún Jónsdóttir, 24.1.2009 kl. 02:37
----
Wrong answer 101
Sem blaðamaður þá setur þú viðmælanda inn í málið og spyrð hann spurningar.
Síðan kveikir þú á upptökutækinu og spyrð hann óræðrar spurningar sem engu máli skiptir í raun nema sem framhald af fyrri spurningu.
Viðmælandi þinn sem nú á traust þitt. Svarar samviskulega.
Ef þú vilt láta viðmælanda líta enn ver út skellir þú í miðri ræðu hans spurningu sem hann átti alls ekki vona á að verða spurður.
Með þessu hefur þú séð til þess að viðmælanda vefst tunga um tönn.
Þegar þetta er klippt og birt er breytt um fyrirsögn.
------------
Þetta eru svo augljós vinnubrögð að ég á ekki til orð.
Það er hafið stríð hér á landi sem aldrei fyrr um orð og tjáningarfrelsi.
Allir þeir sem ekki tjá sig með samskonar orð og setningarskipan og valdstjórnin eru úthrópaðir á torgum með fáránlegum svívirðingum sem menn ættu ekki einu sinn að láta út úr sér í einrúmi.
Stjórnvöld gera allt til þess að fólkið í landinu taki ekki af þeim völdin og landið sem þau telja sig ein eiga og geta ráðstafað
Þetta þarf að stöðva
Við erum þjóðin
Landið er okkar
Kristján Logason, 24.1.2009 kl. 12:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.