2.2.2009 | 02:47
Kannski ágætis verkefnaáætlun
En hvað með okkur sem erum ekki nýju húsnæðislánin frá bönkunum, ekki með myntkörfulán, ekki á barmi gjaldþrots. Okkur sem erum bara fórnarlömb verðtryggingar og verðbólgu. Annaðhvort þarf að byrja aftur að borga verðbætur á laun, eða afnema verðtrygginguna. Þetta nær engri átt hvernig þessi stórfellda eignaupptaka hefur verið síðan afnám verðbóta á laun var afnumin.
Slá skjaldborg um heimilin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heilbrigðisráðherrann var í forsvari fyrir Sigtúnshópinn sáluga, hann lumar kannski á einhverjum ráðum
Ég kýs að lesa það út úr "greiðsluaðlögunar" þættinum að eitthvað verði komið til móts við alla skuldara....allavega þar til annað kemur í ljós
Sigrún Jónsdóttir, 2.2.2009 kl. 14:19
Ojæja .. maður verður bara að vona að yfir það heila muni aðgerðir nýrrar ríkisstjórnar koma til með að létta undir með þeim sem eru allra verst settir í þjóðfélaginu. Vonandi lenda ekki of margir í gjaldþroti áður en tekst að breyta og bæta það sem hingað til hefur misfarist ..
Kisskiss Jóna mín.
Tiger, 2.2.2009 kl. 15:11
Algjörlega sammála þér, Jóna mín!!
Lilja G. Bolladóttir, 3.2.2009 kl. 01:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.