24.2.2009 | 01:09
Er ég að misskilja
Eða er það ekki Alþjóðagjaldreyrissjóðurinn sem ræður því hversu háir stýrivextirnir eru? Ætlar Framsókn að fara að taka fram fyrir hendurnar á Þeim sem raunverulega stjórna landinu. Hefur ríkisstjórnin sem situr núna einhver völd? Er Framsókn ekki orðin þröskuldur, þegar Höskuldur ákvað að vera á móti nýja frumvarpinu um seðlabankann? Höfum við efni á því að bíða, eða skipta tveir dagar engu máli. Er ekki allt hvort sem er komið í kaldakol, og engu raunverulega viðbjargandi? Hvað ætli hann Höskuldur kaupi mörg atkvæði vegna þessa máls? Mér finnst ógeðfellt að horfa á kosningarræður á Alþingi, þegar þjóðfélagið riðar á barmi gjaldþrots. Vanvirðan sem ákveðnir þingmenn sýna á Alþingi er ótrúleg.
Vextir lækki strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kolamolinn er orðin kaldur.
Takk vina fyrir batakveðjuna.
Kv
Anna Ragna Alexandersdóttir, 24.2.2009 kl. 11:59
Skemmtilegur orðaleikur hér hjá þér: „Er Framsókn ekki orðin þröskuldur, þegar Höskuldur [...]“
Rakel Sigurgeirsdóttir, 25.2.2009 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.