14.3.2009 | 01:05
Rigning og rok
Þegar ég fór út í göngutúr klukkan 10.30 í kvöld var smá sjókoma og rok hérna á Seltjarnarnesi. Nokkrum mínútum síðar var farið að rigna, þegar ég var á heimleið klukkutíma síðar var snjórinn bráðnaður. Ég, tvær elstu dætur mínar og hundurinn fórum í göngutúrinn og var meðvindur á leiðinni út á golfvöll, en á bakleiðinni hvessti mikið og þá var mótvindur. Okkur hitnaði vel á göngunni og hundurinn var blautur inn að beini við heimkomuna. Sem betur fer vorum við allar vel klæddar í göngutúrnum, og veitti ekki af.
Hellisheiði, Sandskeið og Þrengsli lokuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
helvíti er ég ánægður,hélt að þarna væri farinn góður biti í hundskjaft,en af hverju var hundurinn ekki vel klæddur?
zappa (IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 01:26
Ég á engann punthund, bara svona alvöruhund sem þarf ekki föt
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.3.2009 kl. 01:55
ansi ert þú góð að fara út í þetta veður - vildi að ég væri svona dugleg - á samt allann útbúnað til göngu í hvaða veðri sem er
Sigrún Óskars, 14.3.2009 kl. 09:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.