Stríðið gegn Íslandi, grein eftir Michael Hudson í Fréttablaðinu í gær.

"Ísland hefur orðið fyrir árás - ekki hernaðarárás, heldur fjármálaárás. Afleiðingarnar eru jafn banvænar þrátt fyrir það. Fleiri verða veikir, lifa í örvæntingu og deyja fyrir aldur fram ef þjóðin neitar ekki að greiða til baka megnið af þeim lánum sem prangað hefur verið inn á hana á síðustu átta árum. En leiðin til bjargar er þyrnum stráð. Voldugir skuldunautar á borð við Bandaríkin og Bretland munu siga áróðursmeisturum sínum, sem og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum, á Íslendinga og krefjast þess að þeir verði hnepptir í skuldafangelsi með því að þvinga þá til að greiða skuldir sem þessar þjóðir myndu aldrei greiða sjálfar.

Til að komast út úr skuldafeninu verða Íslendingar að átta sig á hvers konar efnahagsástand sjálfseyðingar íslenskir bankamenn hafa skapað. Þrátt fyrir að hafa eytt nærri hálfri öld í að rannsaka þjóðir í erfiðri skuldastöðu hef ég sjaldan eða aldrei séð neitt í líkingu við ástandið á Íslandi. Hér á landi hafa bankarnir steypt sér í svo gríðarlegar skuldir að verðgildi krónunnar mun rýrna til frambúðar og leiða af sér verðbólgu næstu áratugina.

Skuldaleikurinn

Í gegnum söguna hafa skuldugar þjóðir oftast farið þá leið að losa sig við skuldirnar með hjálp verðbólgu, þ.e. borgað skuldirnar með "ódýrum peningum". Ríkisstjórnir prenta peninga og viðhalda fjárlagahalla til þess að hækka verðlag og þannig er meira fjármagn í boði, en vöruframboð óbreytt. Þessi verðbólga og gengisfall minnka skuldabyrðina svo framarlega sem laun og aðrar tekjur hækka samhliða.

Ísland hefur snúið þessari lausn á hvolf. Í stað þess að auðvelda hina hefðbundnu skuldaleiðréttingu hefur verið sköpuð paradís lánardrottna og hinni sígildu flóttaleið skuldsettra þjóða lokað. Þjóðin hefur fundið leið til að steypa sér í skuldir með hjálp verðbólgunnar, í stað þess að vinna sig úr þeim með henni. Með verðtryggingu skulda hefur Ísland komið upp einstöku kerfi fyrir banka og aðra lánardrottna sem stóreykur tekjur þeirra af lánastarfsemi, á kostnað launa og tekna af raunverulegri atvinnustarfsemi.

Það er eðlilegt að fólk greiði lán sem tekin hafa verið á heiðarlegan hátt. Venjulega er gert ráð fyrir að fólk taki lán - og bankar láni - til vænlegra fjárfestinga, sem skili arði sem síðan er hægt að nýta til að greiða lánið til baka auk vaxta. Þannig hafa bankar starfað um aldaraðir og þannig hefur orðið til ímynd hins varkára bankamanns sem neitar fjölmörgum þeirra sem sækjast eftir lánum frá honum."

"Með því að fara fram á greiningu á því hver skuldar hverjum hvað getur Ísland komið boltanum í fang lánardrottnanna og látið þeim eftir að svara því hvernig í ósköpunum Íslendingar eigi að fara að því að borga og hverjar efnahagslegar afleiðingar þess verði. Hvernig geta Íslendingar borgað á næstu árum án þess að landsmenn tapi unnvörpum eignum sínum og félagslega kerfið verði lagt í rúst? Hvernig geta Íslendingar greitt skuldir sínar án þess að keyra sig í þrot, leggja niður þjóðfélag félagslegs jafnréttis og koma hér á samfélagi örfárra ofurríkra lánardrottna og svo örsnauðs almennings? Það er raunveruleg hætta á að hér myndist ný stétt fjármagnseigenda sem stjórna muni landinu næstu öldina eða svo.

Íslendingar hafa verið prettaðir. Eiga þeir að líta á það sem skyldu sína að greiða þjóðum sem hafa ekki í hyggju að greiða nokkurn tíma sínar eigin skuldir? Svo lánardrottnar fái greitt þurfa þeir að sannfæra skuldunauta sína um að þeir geti í raun og veru borgað, þ.e. borgað án þess að leggja samfélagið í rúst, selja auðlindir sínar eða koma á gríðarlegri stéttaskiptingu fjármagnseigenda og skuldara.

Lánin eða lífið?

Íslendingar verða að líta til langs tíma. Hvernig á efnahagskerfið að lifa af og vaxa til framtíðar? Verðtryggingu lána verður að afnema. Gjaldeyrislán verður að færa yfir í krónur á lágum, óverðtryggðum vöxtum eða afskrifa að hluta eða öllu leyti. Markmiðið á að vera að fella niður skuldir sem valda efnahagslegu tjóni.

Leiðarljósið er heilbrigt efnahagskerfi í heild sinni. Þeir sem heimta mest eru ekki þeir sem skulda mest, heldur þeir sem hafa lánað mest. Markmið þeirra er að tryggja völd sín í samfélaginu. Umfram allt vilja þeir hámarka vald skulda umfram verðmætasköpun. Þess vegna er verðtrygging lána notuð til að tryggja að bankarnir hagnist á hruni efnahagslífsins, en ekki almenningur, sem greiða þarf jafnt skuldirnar sem og kostnaðinn af hækkandi verðlagi og hruni krónunnar. Lánadrottnar um allan heim eru í óða önn að færa niður skuldir í takt við lækkandi fasteignaverð. Á Íslandi hafa bankarnir hins vegar fengið að hækka skuldabyrðina um 14% á síðasta ári, á meðan fasteignaverð hefur lækkað um 21%! Því verra sem efnahagsástandið er, því sterkari eru lánveitendurnir. Þetta er ávísun á efnahagslegt sjálfsmorð þar sem dýpkandi kreppa hneppir æ fleiri í skuldafangelsi.

Ísland getur tekið forystu og orðið fyrirmynd annarra þjóða í efnahagslegu jafnrétti. Aldrei hefur verið betra tækifæri til að taka afstöðu til þess um hvað standa á vörð - óyfirstíganlegar skuldir eða framtíð íslensks samfélags? Munu stjórnvöld verja þegna sína fyrir afætum fjármálaheimsins, eða munu þau færa þeim íslenska hagkerfið á silfurfati? Það er spurningin sem íslensk stjórnvöld verða að svara"  Michael Hudson er sérfræðingur í alþjóðafjármálum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Fólk þarf að lesa þessa grein, alla.  Ég setti bara inn tæpann helming af greininni.  Ef þessi maður væri í framboði myndi ég kjósa hann.  Ég hlakka til þess að sjá Silfur Egils á morgun, Michael Hudson ætlar að mæta hjá Agli og segja sína skoðun, vonandi.  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.4.2009 kl. 03:29

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Búinn að lesa hana alla. Ef rétt reynist þá munu handtökur og húsleitir hefjast bráðlega.

Arinbjörn Kúld, 5.4.2009 kl. 11:25

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

já ætla að lesa hana alla

Hólmdís Hjartardóttir, 5.4.2009 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband