7.4.2009 | 01:02
Eltingaleikur lögreglunnar
Ætli lögreglan eigi ekki naglamottur til þess að stöðva för svona ökuníðinga? Er ekki tímabært að lögreglan fjárfesti í svoleiðis búnaði? Óhugnanlegt þegar svona ökuníðingar eru í umferðinni. Venjulegir vegfarendur eru í stórhættu, þessir vitfirringar svífast einskis. Það er frábært að ekki urðu slys á fólki í þessum eltingarleik....
Stefndi inn í íbúðahverfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það þarf vonandi ekki að verða slys á fólki áður en þeir íhuga þessa tillögu þína.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 7.4.2009 kl. 01:10
Lögreglan á naglamottur. Það er ekki hægt að nota þær hvar sem er þar sem það getur skapað mikla hættu ef saklaus vegfarandi keyrir á þær en þó að svona vitleysingar keyra á naglamottu þá halda þeir oft áfram en þær hægja þó vel á svona vitleysingum og gera bíla mjög erfiða í stjórn.
Hannes, 7.4.2009 kl. 01:24
Það er nú spurning hvort á að kalla þennan atburð eltingaleik lögreglunnar. Væri ekki nær að kalla þetta ofsaakstur vitfirrings eða kannski manndrápstilraun dópista? Víst er að lögreglan lítur ekki á þetta sem leik heldur skyldu sína til verndar almennum borgurum og vegfarendum. Pælir einhver í þeirri hættu sem lögreglumennirnir leggja sjálfa sig í til að standa undir kröfum um að halda uppi lögum og reglu eins og í þessu tilfelli?
corvus corax, 7.4.2009 kl. 06:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.