2.5.2009 | 02:53
Málamyndarannsókn?
Í framhaldi af öflun þessarar vitneskju geti það verið þáttur í skattaeftirliti að kanna hvort aðilar í viðskiptalífinu hafi tilgreint á framtali sínu eign í þessum félögum, eða hver sé raunverulega á bak við þau. Þótt þessi félög beri mörg íslensk auðkenni, svo sem nafn eða íslenskt hlutafé þá er samt sem áður oft yfir þeim erlend stjórn, erlendir lögmenn eða félög. Þar tekur við að kanna hver sé raunverulegur eigandi en ekki formlegur, segir hann.
Hann segir starfsmenn ríkisskattstjóra engar meiningar hafa um að lögbrot komi upp á yfirborðið í kjölfar þessarar vinnu."
Óformleg rannsókn, hvernig væri að fara að taka á þessum svikamyllum, og arðráni útrásarbarónanna? Taka á málunum af alvöru, ekki bara til málamynda?
Rannsaka félög í skattaskjólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hef fulla trú á að það verði tekið á þessu af fullri hörku - við líðum ekki annað
góða helgi
Sigrún Óskars, 2.5.2009 kl. 09:49
Það er mun gæfulegar að byrja á að rannsaka málið og bíða með stóryrtar yfirlýsingar.
Þessi aðferðafræði hennar Evu ( heitir hún ekki Eva þessi þýska ) að byrja á stóryrtum yfirlýsingum og fara svo að rannsaka gerir hana vanhæfa samkvæmt íslenskum lögum og það þarf engann stjörnulögfræðing til að nýta sér það til að fá máli vísað frá dómi.
Þú sást nú hvernig Baugsmálið fór.
Landfari, 2.5.2009 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.