7.5.2009 | 02:11
Hvenær sjáum við svona dóma á Íslandi
Bankastjórar dæmdir fyrir stórfelld svik? Þeir lánuðu sjálfum sér vinum og vandamönnum stórfé án nokkurra trygginga. Á meðan hinn almenni borgari þurfti ábyrgðarmenn eða fasteignaveð, til þess að fá smálán. Ég bíð ennþá eftir handtökum á þeim sem báru ábyrgðina á hruninu sem varð hérna í haust.
Dæmdir fyrir stórfelld svik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það væri óneitanlega tilbreyting ef bankamenn okkar og útrásartröll færu að fá það sem þeir eiga skilið.
Arinbjörn Kúld, 7.5.2009 kl. 02:27
Ég er sammála ykkur - tími til kominn að einhverjir fari að taka út refsingar sem hæfa glæpum þeim sem eru búnir að koma okkur þangað sem við erum stödd í dag.. en svona er þetta - stóru hákarlarnir sleppa alltaf the easy way - á meðan litla Gunna og litli Jón taka út refsinguna .. ussuss.
Tiger, 7.5.2009 kl. 02:47
Það er erfitt að sjá mun á þessu. Nema kannski meðhöndlun brotafólks.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 7.5.2009 kl. 03:21
Ég bind ennþá vonir við vinnu Joly og hennar fólks
Sigrún Jónsdóttir, 7.5.2009 kl. 11:57
hræddur er ég um að við munum ekki sjá neitt í líkingu við þetta hér,enda enginn sem þurfti að veita ábyrgðir ef hann tók lán yfir milljarð...
zappa (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.