19.7.2009 | 03:20
Flýtir er slæmur
Það er þörf á því að tefja þetta IceSlave-mál fram á haustið, þannig gætu kannski málsaðilar kynnt sér nákvæmlega hvað þessi samningur þýðir fyrir okkur Íslendinga. Ég vil fá að vita hversvegna íslenska samninganefndin hafði ekki hagsmuni Íslendinga að leiðarljóði í þessum ömurlega samningi. Hversvegna vilja íslensk stjórnvöld, gera allt sem í þeirra valdi er til þess að bjarga áhættusæknum IceSlave reikningseigendum. Það hefur oft verið sagt, " ef eitthvað er of gott til þess að vera satt, er það raunin" Þessi háa ávöxtun sem fólki var lofað, hlaut að vera svindl. Svona þegar maður skoðar málin eftirá.
![]() |
Engin vissa um meirihluta fyrir Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.