30.7.2009 | 02:24
Ósanngjörn endurgreiðsla
Hvernig eiga öryrkjar og ellilífeyrisþegar að fara að því að borga ofborgaðar bætur? Ekki get ég séð að þetta fólk sé aflögufært. Hvernig á manneskja sem hefur fengið einhverja þúsundkalla umfram rétt sinn að endurgreiða, þegar skerðingar á bótum hafa verið töluverðar. Hvernig væri að lágmarks framfærslugrunnur verði reiknaður út, til þess að hafa einhver viðmið???? Hvernig væri það að fara að semja við tannlækna? Og sérfræðinga? Tryggingarstofnun ætti að endurskoða sjálfa sig og búa til framfærslugrunn, og ýmsar aðrar nauðsynlegar grundvallarbreytingar á greiðslu bóta.
Ósáttir að vera krafðir um endurgreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.