16.9.2009 | 01:11
Ræða Sóleyjar var flott
Það er verið að selja aðganginn að auðlindinni ( heita vatninu okkar) til Magma í 130 ár. Fyrir 3.7 milljarða og 7 ára kúlulán með veði í bréfunum sjálfum. Ef útrásin var ekki víti til varnaðar, hvað þá. Ætlum við Íslendingar endalaust að láta stjórnvöld misnota völd sín. Þau ( stjórnvöldin) sátu hjá á meðan einkavinirnir spiluðu póker með þjóðarauðinn. Núna á að spila póker með náttúruauðlindirnar. Er ekki kominn tími til þess að staldra við og skoða hvað okkur er mikilvægt, og hvað við þurfum sem þjóð til þess að komast af ?
Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Einmitt.
, 16.9.2009 kl. 10:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.