6.10.2009 | 01:12
Klofningurinn í VG er raunverulegur
Það er greinilegt þegar Steingrímur J. Sigfússon er farinn að tala um það að þingmenn flokksins styðji sitjandi ríkisstjórn. Ég held að ríkisstjórnin þurfi nýja nálgun á málin, ég skil ekki hvernig vinstri stjórn getur unnið alveg eins og frjálshyggjustjórn. Fjármagnseigendurnir fá allann stuðning til þess að halda sínum sess í kerfinu, við skríllinn eigum að borga allt í topp. Bara til þess að glæpamennirnir fái meiri afskriftir?
Núna þarf einhver að taka af skarið og segja hingað og ekki lengra!!!! Ég veit að það þarf að forgangsraða alveg upp á nýtt, setja heimilin í fyrsta sæti og laga greiðslugetu heimilanna að laununum. Að hafa lánin vísitölutryggð en launin ekki er náttúrulega þjófnaður.
Hétu öll stuðningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eftir aðeins 97 flettingar verða flettingar á þessarri síðu orðnar 250.000 sem er áfangi í sjálfu sér.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.10.2009 kl. 01:44
Jóna Kolla...........ég vil enn utanþingsstjórn sérfræðing! Takk fyrir kveðju
Hólmdís Hjartardóttir, 6.10.2009 kl. 01:50
Ég er sammála þér Hólmdís, auðvitað þurfum við þjóðstjórn. það þarf að fá stjórn sem enginn pólitíkus kemur nálægt..
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.10.2009 kl. 01:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.