27.11.2009 | 02:38
Ætli uppbyggingin hafi verið á svipuðum nótum og á Íslandi
Þá er verulega illt í efni, Dubai var talið eitt af ríkustu ríkjunum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ég er ekki hissa þótt titringur hafi verið á fjármálamörkuðum Evrópu ef Dubai lýsti því yfir að greiðslufall yrði í 6 mánuði af ýmsum lánum.
Segir efnahag Dubai breiðan og sjálfbæran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já einmitt, það skyldi þó aldrei vera að þetta væri svipað þar. Sonur Ella míns var að vinna þarna í ein tvö ár, og þá lak smjör af hverju strái. Olía réttara sagt. En ætli það hafi ekki bara verið ofmetið stórlega.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.11.2009 kl. 10:22
Þetta er að fara nákvæmlega eins og Ísland fyrir rúmu ári síðan, nema í þetta sinn getum við hérna á skerinu hlegið "alla leið í bankann". Meðal stærstu kröfuhafanna eru nefninlega breskir bankar, ekki síst þeir sem Gordon Brown var svo vitlaus að þjóðnýta í fyrra, sem þýðir að tap vegna greiðslustöðvunar í Dubai gæti lent óbeint á breska ríkinu. Karma?
Guðmundur Ásgeirsson, 28.11.2009 kl. 01:07
Ég trúi á karma.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.11.2009 kl. 02:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.