Greiningin er komin

Elsku litli sonur minn greinist á einhverfurofinu.  Hann er með milda útgáfu af Aspberger heilkenninu.  Núna er næst á dagskránni að senda strákinn í annað greiningarpróf, þar sem hann sjálfur svarar ýmsum spurningum.  Fyrra prófið var eingöngu byggt á mínum svörum, um hegðun og allskonar einkenni alveg frá barnæsku.  Hann hefur aldrei leikið sér við sína jafnaldra, en er góður með fullorðnum og svo litlum börnum.  Heart   Ein sem er fegin að greining er komin, núna byrjar vinnan fyrir alvöru

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það er gott að fá greiningu...þá er hægt að gera eitthvað vitrænt fyrir hann

Hólmdís Hjartardóttir, 29.5.2008 kl. 01:30

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er einmitt málið, núna byrjar uppbyggingarvinnan

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.5.2008 kl. 01:35

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Það er gott að vera laus úr óvissunni, þótt kannski greiningin boði engin gleðitíðindi. En þá vitið þið allavega hvað þið eruð að takast á við.

Óska þér og syninum alls hins besta í næstu skrefum.

Knús, knús....

Lilja G. Bolladóttir, 29.5.2008 kl. 01:55

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það eru vissulega gleðitíðindi að fá loksins að vita hvað er að, þá er hægt að gera eitthvað.  Ekki bara vera í óvissu og halda að maður sé léleg móðir eða lélegur uppalandi

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.5.2008 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband