Uppbökuð humarsúpa.

Ég bjó til mína fyrstu humarsúpu í dag,  ég notaði enga uppskrift en ætla að segja frá því hvernig ég eldaði hana.  Í gærkvöldi steikti ég mér 8 humra í vinnunni, ég kryddaði þá með hvítlauksdufti, papriku og svörtum pipar.  Ég bara skar þá í tvennt og steikti í skelinni, þegar ég var búin að borða úr skeljunum henti ég þeim á pönnuna aftur og sauð þá í 2 klukkutíma, ég bætti smá hvítvíni úti soðið til bragðbætis.  Ég sauð þetta niður og tók með mér heim u.þ.b 1 bolla af kröftugu soði.  Svo í dag steikti ég nokkra humra í viðbót bara til þess að borða með ristuðu brauði og kokteilsósu, sem er æðislegt.  Ég henti líka skeljunum af þessum steiktu humrum í pott og sauð með gulrótum, grænmetiskrafti, fiskikrafti, tómatpuré og svörtum pipar í klukkutíma.  Þá síaði ég soðið og, bjó til smjörbollu og jafnaði út soðið, sauð það í nokkrar mínútur og þá henti ég fullt af skelflettum humri út í pottinn.  Þetta lét ég sjóða í tvær mínútur og bætti ég þá einum pela af rjóma út í súpuna.  Og Namm Namm hún var alveg æðisleg þessi súpa.  Woundering  Ein súpugerðarkona 

Ps. það er mynd af súpunni í albúminu mínu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hljómar vel.

Hólmdís Hjartardóttir, 21.6.2008 kl. 00:44

2 Smámynd: Tína

Þetta hljómar nú bara eins og matseðillinn hjá Lýð Dagssyni í lottóinu . En það er fátt sem jafnast á við góðan humar og ég sleiki nú bara út um við þessa færslu þína vinkona!!

Njóttu helgarinnar.

Tína, 21.6.2008 kl. 08:16

3 Smámynd: Jóna Salvör Kristinsdóttir

Já þetta var ekkert smá góð humarsúpa  braðlaukar mínir dönsuðu af gleði :)

Jóna Salvör Kristinsdóttir, 21.6.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband