Ég fór á Laugaveginn í dag til þess að horfa á Gay-pride gönguna

Ég tók náttúrulega myndavélina mína með mér, ég er búin að setja nokkrar myndir inn hjá mér.  Það hefur verið árlegur viðburður hjá mér að standa fyrir utan vinnustaðinn minn, til þess að horfa á þessa frábæru göngu. Smile   Í kvöld er ég að ammast, tveir elstu dóttursynir mínir eru hjá mér.  Ég hef aldrei leyft þeim báðum að sofa hérna hjá mér áður.  Allt gekk vel, þegar kom að því að fara að sofa.  Ég vona að það gangi jafn vel í fyrramálið, þegar amma verður frekar þreytt og syfjuð.  Ég ætla að horfa á handboltaleikinn í nótt.  Hann byrjar klukkan 2.35 og verð ég vonandi vel vakandi þegar leikurinn við rússana fer fram.  W00t   Áfram Ísland

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Verð að missa af handboltanum............16 tíma vakt á morgun

Hólmdís Hjartardóttir, 10.8.2008 kl. 01:01

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég er ansi hrædd um að þú verðir soldið sybbin í fyrramálið með guttunum.

Jóna Á. Gísladóttir, 10.8.2008 kl. 02:02

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Örverpið er búið að lofa því að gefa strákunum morgunmat og fara svo að horfa á barnatímann í sjónvarpinu, svo verð ég kannski vakin um hádegisbilið VONANDI. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.8.2008 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband