Er núna komin kreppa?

Þessi yfirtaka á Glitni er náttúrulega frétt dagsins.  Ég hef nokkrar spurningar fyrir stjórnvöld vegna yfirtökunnar.  Til dæmis, verða sett lög á risa starfslokasamninga?  Verða laun stjórnenda bankans löguð að almennum launum?  Þar sem við skattgreiðendur eru núna eigendur bankans, verður tekið tillit til okkar, hins almenna launþega?  Eða heldur sama óráðsían áfram?   Ein spurul
mbl.is Stjórnendur Glitnis hefðu mátt fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Afhverju spyrðu svona mikið?....þú veist að okkur kemur þetta ekki við..............þannig finnst mér Geirharður svara þjóðinni

Hólmdís Hjartardóttir, 30.9.2008 kl. 02:26

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hahahahah Geirharður, þvílíkt réttnefni á manninum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.9.2008 kl. 02:27

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Já, Jóna mín, að sjálfsögðu verða laun bankastarfsmanna nú löguð að öðrum ríkislaunum. T.d. er viðskiptafræðingur með þriggja ára háskólamenntun, hann hlýtur því núna að fá verulega lægri laun heldur en ég með mína fjögurra ára háskólamenntun. Lögfræðingarnir fá minna en ljósmæður og aðeins meira en ég.

Starfslokasamningar?? Nei, núna þegar starfsmennirnir verða ríkisstarfsmenn þá verður staðan einfaldlega sú, að það verður aldrei hægt að losna við þá aftur.....

Lilja G. Bolladóttir, 30.9.2008 kl. 02:31

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Vonandi!!    Það verður að setja lög og banna alla starfslokasamninga, og lækka launin hjá þessum fávitum

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.9.2008 kl. 02:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband