Birta og ylur. Burt með spillingarliðið

Gísli Baldvinsson sendi þér skilaboð: Á þessum skammdegisdögum er nauðsyn að birta og ylur kærleiks og vinskapar streymi um nágrenni okkar. Við þyrftum nú strax að hvetja alla til að byrja á því sem kallað er -Ljós í myrkri-. Í fyrstu væri einungis lifandi kertaljós í einum glugga, falleg kveðja til nágrannanns.

Þetta er í raun byrjun á ljósaskreytingu aðventunnar en væntanlega meir með hvítum ljósum sem síður eru tengd sjálfum jólunum. Stígandi væri í þessu sem byrjaði á kertaljósi í glugga og endar í fallegum velupplýstum gluggum í byrjun aðventu.

Látið þetta berast.

 Núna er tíminn til þess að standa saman, og láta ljósin skína. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Þegar við keyrðum heim í kvöld sáum við jólaseríu úti í einum glugga og maðurinn minn hafði á orði að best væri að tendra ljós í gluggum í þessu svartnætti.

Skyldi það duga til að hressa landann?

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 8.11.2008 kl. 01:51

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Örugglega. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.11.2008 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband