Ég tók ákvörðun í gær

Mér finnst hún alveg stórmerkileg.  Ég hef ákveðið að kaupa ekkert í 1 ár, nema að eitthvað brotni eða rifni.  Ég ætla ekki að kaupa nýtt, ef ég fæ gamalt.  Nema nærföt og sokka sem verða keypt eftir þörfum.  Ég las um svoleiðis fólk í fyrra eða árið þar á undan.  Mér fannst þetta skrítið þá, en í dag finnst mér þetta mjög rökrétt.  Þannig að ég er komin í verslunarbann, frá og með deginum í dag.  W00t   Ein hagsýn húsmóðir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Jóna.

Þetta er hægt,en má ég og við Bloggvinirnir fylgjast með því þetta er lofsvert framtak og öðrum til eftirbreytni.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 02:57

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi, mér finnst þetta spennandi hugmynd og ætla ég að standa mig vel. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.1.2009 kl. 03:04

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ætli það sé ekki sjálfhætt að versla?

Hólmdís Hjartardóttir, 13.1.2009 kl. 03:07

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Nei ekki alveg, en næstum því

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 13.1.2009 kl. 03:10

5 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Flott hjá þér.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 03:29

6 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Gleymdi að minnast á að ég er stílisti og kenni fólki að spara með því að setja það sem það á fyrir.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 03:31

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þetta er akkurat undirbúa börnin við hinu versta rólega svo sjokkið komi ekki allt í einu. Ég þarf sama sem ekkert að kaup mér annað en grjón það sem eftir er æfinar.

Ég átt von á þess því í fyrra og hitt fyrr gat ég verslað gæðaföt og raftæki frá USA á ebay fyrir 50% ódýrrari en seld hér úr búð. Merkjavara.

Þá skyldi ég ekkert í því afhverju ein vinkona mín keypti sér bíl hjá Glitni á myntkörfuláni. Ég sagði henni að Íslenska krónan gæti ekki haldist svona sterk. Hún trúði mér ekki. Sennlega af því að vörurnar voru ekki lækkaðar í Mollunum þótt gengið væri hagstætt.    

Júlíus Björnsson, 13.1.2009 kl. 03:43

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég hef ekki keypt mér neitt nýtt í þónokkurn tíma....þannig að það verður lítil breyting hjá mér

Sigrún Jónsdóttir, 14.1.2009 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband