Breytingar á borginni okkar

Ég hef unnið á bar við Laugaveginn undanfarin 11 ár.  Á Laugaveginum er alltaf fjör, nema núna.   Undanfarna mánuði hef ég tekið eftir því að það er færra og færra fólk á ferli, rúnturinn er að deyja út.  Í kvöld þegar ég var í vinnunni sá ég varla bíl keyra niður Laugaveginn.  Svo þegar vaktin mín var búin um 12 leitið, var ekki bíla að sjá.  Ekki einu sinni í bílastæðunum við Laugaveginn.  Ég fann svona tilfinningu eins og Palli var einn í heiminum W00t    Mér fannst ég vera ein í heiminum, ekkert líf við þessa lífæð okkar Reykvíkinga.  Svona birtist kreppan mér. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Enda bensínið dýrt Jóna mín

Hilmar Gunnlaugsson, 18.3.2009 kl. 02:10

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

æ við eigum eftir að finna meira fyrir þessu....ætla að kíkja á barinn til þin áður en ég flý land

Hólmdís Hjartardóttir, 18.3.2009 kl. 02:22

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Svona upplifun segir meira en margar félagsfræðikannanir.   Get sjálf "tekið út" smábæ úti á landi á fimm mín.  Bara með því að labba eftir aðalgötunni og taka púlsinn.   Reyndar líka Laugaveginn.  Er bara svo sjaldan þar, sérstaklega að kvöldlagi, enda sérð þú alveg um þetta Jóna mín.

Munum samt að Laugavegurinn á sér ris og hnig -og mun rísa aftur

Á hvaða bar vinnur þú annars ?

Hildur Helga Sigurðardóttir, 18.3.2009 kl. 02:35

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta er "myndbirting" sem ég er búin að eiga von á alveg frá áramótum.  Velti því fyrir mér hvernig sumarið verður

Sigrún Jónsdóttir, 18.3.2009 kl. 07:31

5 Smámynd: Ragnheiður

Jóna, ég er búin að opna fyrir þér.

Þetta er hálf undarleg tilvera orðið *hrollur*

Ragnheiður , 18.3.2009 kl. 10:26

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Úff, og þegar mannlífið sem hefur einkennt lífæð borgarinnar hvað tekur þá við

Mig langar líka til að vita á hvaða bar þú vinnur? Kem kannski og heimsæki þig þangað næst þegar ég verð í borginni þar sem við sjáumst ekki á mótmælum

Rakel Sigurgeirsdóttir, 18.3.2009 kl. 12:44

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég vinn á Laugarvegi 72.  Barónspöbbinum

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.3.2009 kl. 14:05

8 Smámynd: Hannes

Ég er ekki hissa á því þó að það sé minna af fólki á rúntinum enda þarf fólk að skera við sig og byrjar á að skera niður ýmsan óþarfa eins og að rúnta.

Hannes, 18.3.2009 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband