Hollendingar mála bæinn appelsínugulann!

Ég var að vinna í kvöld á bar við Laugaveginn eins og svo oft áður.  Í bæinn eru komnir margir Hollendingar sem ætla að horfa á landsleik Íslendinga og Hollendinga á laugardaginn.  Það voru stórir hópar sem gengu Laugaveginn í appelsínugulum fötum.  Á barinn þar sem ég vinn kom 10 manna hópur frá Hollandi og var einn af þeim algjör brandarakarl.  Þetta var maður á sextugsaldri sem var svo fyndinn að allir á barnum voru hlæjandi.  Hann notaði skóinn sinn sem farsíma, fór á klósettið og kom fram með klósettpappír upp úr buxunum fram og spókaði hann sig bæði á barnum og á Laugaveginum með klósettpappírinn hangandi.  Svo þegar annar viðskiptavinur ætlaði að hjálpa honum, með því að benda á klósettpappírinn lét hann eins og trúður og skemmti okkur öllum vel.  Svo missti hann "alveg óvart buxurnar niður"  og fólkið hló.  Ég skemmti mér allavega vel í vinnunni í kvöld.  Vonandi verður sami hópur á barnum á föstudag og laugardag líka. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Mér finnst eiga vel við að segja: Guði sé lof fyrir gleðigjafana.

Eygló, 6.6.2009 kl. 00:15

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Mikið er gaman að lesa svona skemmtilega frásögn.  -  Vonandi verður þér að ósk þinni.  Hvaða bar er þetta ?., það væri gaman að kíkja.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.6.2009 kl. 01:47

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Barinn heitir Barónspöbb og er á Laugavegi 72. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.6.2009 kl. 02:20

4 Smámynd: Eygló

Allar í Hol lendingana! Þeir verða ofvirkir eftir leikinn!!!!  Nei, maður hefði kíkt í bæinn fyrir einhverjum áratugum... a.m.k. í +17°C  !!!

Eygló, 6.6.2009 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband