Mikilvægt slúður

Celine Dion ófrísk, heyrt hef ég að þetta sé tvíburi átta ára gamals sonar hennar.  Eggin hennar voru á síðasta söludegi, svo það var að hrökkva eða stökkva. 

 Þetta eru mikilvægar upplýsingar fyrir okkur Íslendinga, á meðan allt er í upplausn hérna.  Spillingarliðið situr ennþá og skammtar sjálfu sér ríflega, skilanefndirnar raka saman fé, auðmenn fá skuldirnar niðurfelldar.  Þjóðnýðingarnir eru að selja okkur í þrældóm, með fyrirvörum.  Gagnslausum fyrirvörum.  Auðlindirnar okkar sem eru þjóðarauðlindir, ganga kaupum og sölum til erlendra stórfyrirtækja. 


mbl.is Celine Dion þunguð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Já það er nefnilega það  Ekki það að stöku sinnum þykir mér nú ágætt að lesa eitthvað annað en spillingarfréttir

, 19.8.2009 kl. 09:08

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Gvöð... er þetta satt???

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 19.8.2009 kl. 22:08

3 Smámynd: Hannes

Enn áhugavert. Ég mæli með að næst verði gerð frétt um hvernig mismunandi málningartegundir þorna.zzzzzzzzzzzzzzzzz

Hannes, 19.8.2009 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband