Hættulega mjó læri

Lærin á mér eru hættulega mjó, ég stökk og fann málband um leið og ég las þessa frétt.  Mín læri mælast nákvæmlega 56 sentimetrar.  Það er ekki eins og ég sé ofurmjóna.  Ég er með hættulegustu fituna, magafitu.  Ég mun örugglega ekki verða gömul, allar líkur eru á móti mér.  Ég er með kúlumaga alveg eins og amma mín hafði, hin amma mín hafði læri og rass.  Það er víst betra að hafa rassa og lærafitu en magafitu. 
mbl.is Hættulegt að vera með mjó læri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Enn einn áhættuhópur.

Eru til einhver samtök fyrir þá sem verma flesta "áhættuhópa".

Áhugaverð samtök það!  Við fengjum líklega báðar inngöngu Jóna mín

Jenný Stefanía Jensdóttir, 5.9.2009 kl. 06:16

2 Smámynd: Eygló

Ég er farin að hallast að því að það séu litlar líkur á að maður lendi í slysi, vegna þess að maður hlýtur sjálfur að vera SLYS!

Eygló, 6.9.2009 kl. 00:21

3 Smámynd: Sigrún Óskars

ég er líka í þessum áhættuflokki - með magafitu

Sigrún Óskars, 6.9.2009 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband