Ekki vann ég í Lottóinu þessa vikuna

En ég er samt búin að græða smá fúlgu undanfarna 3 mánuði.  Ég ætla að fjárfesta í 3ja sæta leðursófa á morgun.  Ég ætla að eyða sparnaðinum í sófa.  Hvernig fór ég að því að spara, ef einhver vill vita það er bara að halda áfram að lesa. 

 Ég hætti að reykja fyrir tæpum 3 mánuðum síðan.  Þessi leðursófi kostar að vísu sama og reykingarnar mínar kostuðu í 4 mánuði, þannig að ég ætla að taka forskot á sæluna.  Ég þakka Steingrími J Sigfússyni fyrir það að ég er hætt að reykja, þar sem ég hætti að reykja til þess að þurfa ekki að borga nýja tóbaksskattinn sem lagður var á reykingarfólk í vor.  Takk Steingrímur, fyrir það að ég á næstum því fyrir nýjum 3ja sæta leðursófa. 


mbl.is Vann 35 milljónir í Lottói
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Til hamingju með þennan áfanga Jóna mín, stendur þig betur en sumir.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 21.9.2009 kl. 02:28

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gangi þér vel Jóna mín...og til hamingju með sófann...og reykbindindið

Hólmdís Hjartardóttir, 21.9.2009 kl. 07:57

3 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Til hamingju með það Jóna og velkomin í bloggvinahópinn minn. Og ekki veitir af að bæta nokkrum árum við lífið, með heilsusamlegra líferni, til að borga æs-sleif fyrir bjöggana meðan þeir djamma á tortóla með hagnaðinn og við og börnin okkar borga skuldirnar.

Baldvin Björgvinsson, 21.9.2009 kl. 09:04

4 Smámynd:

Vá hvað þetta er flottur árangur. Sko vel að því komin að fá þér sófann

, 21.9.2009 kl. 14:16

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það borgar sig nota líkmalegan viðhalds mátt í annað en verjast gegn tóbaksmengun. Það er önnur hlið sem oft gleymist.

Júlíus Björnsson, 22.9.2009 kl. 00:55

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Næst á dagskránni hjá mér er að koma mér í gott form, svo ég hafi krafta til þess að borga æseif næstu áratugina. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.9.2009 kl. 01:10

7 Smámynd: Júlíus Björnsson

Við borgum ekki neitt en tökum það sem okkur ber Jóna! 

Júlíus Björnsson, 22.9.2009 kl. 02:27

8 Smámynd: Sigrún Óskars

til lukku aftur og aftur - þetta er frábært hjá þér að hætta að reykja

Sigrún Óskars, 22.9.2009 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband