25.2.2010 | 01:44
Nei, nei, nei ekki nýjan samning, fyrst þarf að kjósa um þann gamla í þjóðaratkvæðagreiðslu
ERTU HLYNTUR LÝÐRÆÐI OG LÝÐRÆÐISUMBÓTUM? Ef svo er þá hvet ég þig til að fara niður í
Laugardalshöll og kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lögin.
núna strax í dag. Þegar tugir þúsunda hafa kosið geta yfirvöld ekki
tekið af okkur þennan rétt, sem er lögbundinn í stjórnarskránni.
KJÓSUM NEI við þrælavæðandi Icesavelögunum. Það er opið í Laugardalshöllinni frá kl. 10-22 alla daga. Látiði skilaboðin ganga!
Umsókn Íslendinga rædd í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er búið að taka þetta mál úr höndunum stjórnvalda og fá það þjóðinni og það er búið að gefa það út að hún ætlar að tala 6 mars´10. Það eina sem stjórnvöld hafa umboð til að gera er að draga sínar fáránlegu gerðir til baka.
Allar aðrar aðgerðir stjórnvalda í þessu máli eru ólöglegar. Allt samninga makk stjórn valda fyrir 6 mars er bara bull óvita, en það er eins og það skilji það eingin, hvorki stjórn né stjórnarandstaða.
Hrólfur Þ Hraundal, 25.2.2010 kl. 07:54
Já ég er búin að kjósa og segja NEI. Við skulum ekki láta taka lýðræðislegan rétt okkar úr höndunum á okkur af þessari velferðar og jafnaðarstjórn
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2010 kl. 19:53
Það sem meira er nú eiga að gefast fleiri tækifæri til að kynna okkar málstað,því von er á fréttamönnum,í tilefni kosninganna.
Helga Kristjánsdóttir, 25.2.2010 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.