21.3.2010 | 01:09
Gos hafið í Eyjafjallajökli
Það hlaut að enda með gosi. Jörð hefur skolfið á þessu svæði í margar vikur. Vonandi verður ekki mikið tjón af þessu gosi, öskufall er alltaf slæmt fyrir búfénað í nágrenni gosstöðva. Sem betur fer er flest fé á húsi eða í fullri gjöf.
Öskufall byrjað í byggð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þarna er búfé sem stendur úti við opið og gefið hey í grindur.
Flestir hafa kindurnar inni en ekki allir.
Sigurður Haraldsson, 21.3.2010 kl. 01:17
Ég setti hvítan disk út á tröppur hjá mér, það er stíf suðaustan átt og aska gæti auðveldlega borist hingað til Reykjavíkur -> Seltjarnarness.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.3.2010 kl. 01:27
Já það er hugsanlegt.
Sigurður Haraldsson, 21.3.2010 kl. 01:30
Eins gott að við kunnum þó þokkalega að bregðast við slíkum hamförum.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 21.3.2010 kl. 01:42
Já það er nýlega búið að fara yfir rýmingaráætlanir.
Sigurður Haraldsson, 21.3.2010 kl. 01:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.