Svona læti eru kunnugleg fyrir mér

Ég hef tvisvar verið inni í húsum það sem þakplötur fjúka, í bæði skiptin úti á Seltjarnarnesi.  Í fyrra skiptið heima í Bakkavör árið að mig minnir 1973 það var í september eða október.  Leyfar af fellibyl skullu á suðvesturhorninu með miklu suðvestan veðri.  Það er sérstaklega óhugnalegt þegar plöturnar byrja að losna fyrst byrjar hratt bank sem hægir svo á og höggin verða þyngri, þegar þær þakplötur eru foknar byrjar næsta röð. 

Í Bakkavörinni voru plötur líka að fjúka af húsinu fyrir framan okkar og fengum við sem betur fer engar plötur í gegn um gluggana sem sneru í suður.  Nokkrar plötur stoppuðu á svölunum hjá okkur. 

Seinni stormurinn kom óvænt, það var að mig minnir í mars árið 1991 þá bjó ég á Tjarnarstíg og var fjaran í framhaldi af garðinum þar sem ég leigði.  Þar fuku líka nokkrar þakplötur en verra var þegar allt þakið fór að hristast, þá þaut ég niður í kjallara og skildi yngsta barnið mitt eftir.  Elsta dóttir mín sótti barnið sem betur fer, ég fékk ofsahræðslukast.  Sem betur fer voru björgunarsveitamenn á svæðinu og náðu þeir að fergja þakið og bundu þeir það niður með stögum líka. 


mbl.is „Þetta voru læti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það var árið sem gaus í Eyjum,þetta ár er mér minnisstætt.Systir mín býr í Eyjum,svo hugurinn var líka hjá þeim,í þessum hamförum.

Helga Kristjánsdóttir, 23.3.2010 kl. 00:40

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég man það vel að gosið í Eyjum byrjaði þann 23 janúar árið 1973, ég man ennþá þegar ég sótti Moggann og flennistór fyrirsögn var þar Eldgos hafið í Eyjum að mig minnir.  Pabbi minn sem er nýdáinn átti afmæli þennan dag, varð 32 ára daginn þann. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.3.2010 kl. 01:32

3 Smámynd: Einar Steinsson

Þórólfur er yfirvegaður maður, þetta sama hús varð fyrir snjóflóði fyrir nokkrum árum.

Einar Steinsson, 23.3.2010 kl. 08:51

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svona læti í veðri eru alltaf óhugnanleg, náttúran sýnir enga miskun.  Hvort sem það er snjóflóð, eldur, jarðskjálfti eða eldgos.  Hér fyrir margt löngu fauk barnaskóli í Hnífsdal, allt húsið fauk ofan af krökkunum.  Sem betur fer voru þau flest niður í kjallara, einhverjir slösuðust en enginn alvarlega, ekki utaná.  En þau eru öll veðurhrædd og líður illa í vindi, þau losna ekki við þá tilfininingu, svo sárin þeirra eru innan í sem oft er langtum verra, því í fyrsa lagi finnst fólki ekki mikið til um sár sem ekki sjálst, og svo ererfiðara að komast að til að lækna slík sár. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2010 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband