30.3.2010 | 01:01
Gylfi gjammar
Hvernig væri að hann færi að vinna fyrir umbjóðendur sína, verkalýðinn? Gylfi hefur að mínu mati svikið verkalýðinn, maður gæti haldið að hann væri á launum hjá Jóhönnu og Steingrími, en ekki verkalýð þessa lands.
Hann ætti að fara að berjast fyrir okkur fólkið sem borgum honum launin, kjararýrnun okkar er ótrúlega mikil frá því að bankarnir hrundu. Hann virðist ekki hafa áhuga á kjörum okkar sem varla eigum í okkur og á.
Ég vil líka benda honum Gylfa á það að fólki sem þarf að standa í biðröðum til þess að fá matargjafir fjölgar daglega. Honum virðist sama um það. Skammastu þín Gylfi!!!
Dýrkeypt leit að köttum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hef aldrei séð neitt við þennan nýliða í pólitík,enda dúkkar hann upp í stjórn.þótt engin hafi kosið hann. Sjáumst á fundi á morgun vonandi.
Helga Kristjánsdóttir, 30.3.2010 kl. 01:23
Þið eruð að tala um sitthvorn manninn.
Þórarinn Baldursson, 30.3.2010 kl. 01:29
Helga það er rétt hjá Þórarni að við erum að tala um tvo Gylfa. Ég tengi við fréttina við ummæli Gylfa Arnbjörnsson, en þú ert greinilega að tala um Gylfa ráðherra.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.3.2010 kl. 02:07
Það er sama hvor Gylfinn er, þeir verða báðir að biðja Jóhönnu um leyfi áður en að þeir segja eitthvað
Axel Guðmundsson, 30.3.2010 kl. 07:45
Aha! rétt hjá Axeli.
Helga Kristjánsdóttir, 30.3.2010 kl. 13:08
Ég hef misst álit á þeim báðum, veit ekki hvorum stendur meira að sama um þjóðina svei mér þá.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2010 kl. 16:17
Tek undir með ykkur öllum
Christine Einarsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.