17.4.2010 | 00:29
Spennandi leikur í handboltanum í kvöld
Það er ekki á hverjum degi sem við gerum jafntefli við, heimsmeistara, ólympíumeistara og Evrópumeistara í sama leiknum.
Ég, börnin mín og minn fyrrverandi horfðum á leikinn í kvöld, fyrri hálfleikurinn var daufur og strákarnir okkar frekar slakir staðan í hálfleik var mjög vond fyrir okkur, þ.e.a.s 8-16 ef ég man rétt. Seinni hálfleikurinn bætti þann fyrri vel upp, þvílík spenna og skemmtun.
Ég ætla svo sannarlega að horfa á seinni leikinn á morgun, hann byrjar klukkan 15.50. Ég vona að strákarnir okkar standi sig svona vel á morgun líka.
Jafntefli gegn heimsmeisturunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.