16.5.2010 | 01:10
Var sagt ólöglega upp störfum
Finnst fólki ekkert athugavert við þessa fyrirsögn? Mér finnst þessi fyrirsögn á svipuðu róli og þegar dóttir mín kom heim úr skólanum fyrir ca. 8 árum síðan og sagði "það var lamið mig í skólanum í dag" Svo nokkrum dögum seinna sagði hún "það var strítt mér í skólanum í dag" Ég þoli ekki svona ambögur.
Var sagt ólöglega upp störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jú, þetta er athugavert. Fáránleg fyrirsögn, raunar...
Ybbar gogg (IP-tala skráð) 16.5.2010 kl. 01:53
Alveg rétt hjá þér, menn verða að passa upp á málfræðina!
Guðmundur Júlíusson, 16.5.2010 kl. 01:59
Mér þótti skrýtið að hlusta á íslenskufræðing samþykkja þessar ambögur sem dóttír mín sagði við mig, hún (íslenskufræðingurinn sagði að þetta væri þróun málsins í hnotskurn) ég samþykki ekki svona útskýringar.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.5.2010 kl. 02:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.