27.5.2010 | 01:36
Það er skárra að vera blindur en dauður
Þessi fíflalegi drykkjuleikur er skárri en drykkjuleikurinn þar sem ungmenni drekka 21 skot á stuttum tíma, þar er afleiðingin ekki blinda. Í þeim drykkjuleik hafa mörg ungmenni týnt lífi sínu, áfengiseitrun er afleiðing þessa drykkjuleiks.
Ekki skil ég hvernig þessir drykkjuleikir eru svona vinsælir, eru foreldrar þessarra ungmenna á sama plani og börnin? Vonandi verða þessir drykkjuleikir aldrei vinsælir hérna á Íslandi.
Hættulegur drykkjuleikur nær vinsældum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já það er erfitt að skilja svona. Þó hefur maður í den verið í partíum þar sem sumir eru í að mana hverja aðra í einhverja vitleysu. Fíflagangur og kjánaprik með mis-alvarlegum afleiðingum.
Ólafur Þórðarson, 27.5.2010 kl. 13:13
Ég fékk nú tár í augun við lestur þessarar fréttar. Hvernig dettur fólki þessi vitleysa í hug?
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 27.5.2010 kl. 13:21
Þessi banvæni drykkjuleikur sem hefur náð nokkurri fótfestu í Ameríku snýst um það að drekka 21 snapsa á 21 árs afmælinu. Margt ungt fólk tekur þessarri drykkjuáskorun og margir hafa dáið, og örugglega margir hlotið skaða af þessu.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.5.2010 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.