Ég fór inn á síðu Vinstri Grænna og skoðaði stefnuskrána þeirra

Ég varð hissa þegar ég las stefnuskrána, það er með ólíkindum að þeir Vinstri Grænir sem eru í sitjandi stjórn eru ekki að fara eftir, né virða eigin stefnuskrá.   Ég ákvað að afrita stefnuskrána svona bara til þess að minna fólk á það, hvað Vinstri Grænir stóðu fyrir á meðan þeir voru í stjórnarandstöðu. 

"

STEFNUYFIRLÝSING VINSTRIHREYFINGARINNAR - GRÆNS FRAMBOÐS

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir róttækum þjóðfélagsumbótum almenningi til hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem vilja útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í samfélaginu.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill byggja upp lýðræðislegt og réttlátt þjóðskipulag grundvallað á virkri þátttöku almennings. Hreyfingin hafnar alræði markaðshyggjunnar og vill varðveita sjálfstæði þjóðarinnar og forræði yfir eigin auðlindum. Vinstrihreyfingin­ – grænt framboð vill binda enda á hersetu í landinu og aðild að hernaðarbandalagi, en leggur áherslu á að eiga gott og friðsamlegt samstarf við allar þjóðir, vernda náttúru og umhverfi landsins og tryggja sjálfbæra þróun samfélagsins.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur sígildar áherslur vinstristefnunnar um jöfnuð og félagslegt réttlæti, róttæk umhverfisverndarsjónarmið og kröfur um sjálfbæra þróun eiga og verða að fara saman. Hvorugt fær staðist án hins þegar til framtíðar er litið. Lífskjör og velferð núlifandi kynslóða mega ekki byggja á því að náttúrugæðum sé spillt og gengið á rétt þeirra sem á eftir koma. Á sama hátt felst það í heilsteyptri umhverfisverndarstefnu að skammtímahagsmunir, neysluhyggja og gróðafíkn víki fyrir verndun umhverfis og varðveislu náttúrugæða. Verkefnið er að lyfta gildum raunverulegra lífsgæða, skapa samfélag réttlætis og jafnaðar í góðri sátt við lífríkið allt og móður jörð

Náttúra og umhverfi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill vernda íslenska náttúru og auðlindir lands og sjávar. Náttúruauðlindir eiga að vera sameign landsmanna og þær á að nýta í þágu almannahagsmuna án þess að gengið sé á umhverfið. Atvinnuvegir og fyrirtæki þurfa að laga sig að kröfum um sjálfbæra þróun og vistvæn framleiðsluferli. Varðveita þarf hreinleika landsins í almannaþágu til frambúðar svo og til að treysta atvinnulíf og framleiðslu og sölu á hollum neysluvörum. Taka þarf upp græna þjóðhagsreikninga og meta verðmæti ósnortinnar náttúru. Skattkerfið á einnig að hvetja til umhverfisverndar.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð styður sjálfbæra orkustefnu og leggst gegn mengandi stóriðju og stórvirkjunum sem valda mikilli röskun á náttúru landsins. Við viljum vernda hálendi Íslands og stofna þar til stórra þjóðgarða og friðlanda. Við gerum kröfu um víðtækan almannarétt í sátt við landið og fólkið í dreifðum byggðum. Lífríki landsins, landslag og jarðmyndanir þarf að vernda með heildstæðri löggjöf og skipulagi. Við styðjum vistvænar fiskveiðar og vernd uppvaxtarsvæða nytjafiska.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á öfluga alþjóðlega samvinnu um umhverfismál og bindandi sáttmála svo að land okkar og jörðin öll verði góður bústaður til frambúðar. Vernd hafsins gegn mengun er úrslitaatriði fyrir Íslendinga. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill stuðla að sem bestri samvinnu við samtök áhugafólks um umhverfisvernd og virkja almenning til þátttöku í að byggja upp vistvænt, sjálfbært samfélag í þágu núlifandi og óborinna kynslóða.

Jafnrétti, félagslegt réttlæti og efling byggðar

Vinstrihreyfingin - grænt framboð grundvallar stefnu sína á jöfnum rétti allra án tillits til kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, litarháttar og uppruna. Aðstaða allra landsmanna verður að vera sem jöfnust, óháð búsetu og félagslegri stöðu. Við gerum kröfu um fullt jafnrétti til náms og jafnan rétt allra til opinberrar þjónustu, upplýsinga um samfélagsleg málefni og til virks tjáningarfrelsis. Félagslegt húsnæðiskerfi er nauðsynlegur þáttur í því að tryggja velferð landsmanna. Skylt er að tryggja vaxandi hópi aldraðra mannsæmandi kjör og aðstæður til að taka virkan þátt í samfélaginu. Gera verður átak til að stórbæta kjör og allar aðstæður öryrkja. Vinstrihreyfingin – grænt framboð vill auka þátttöku feðra í uppeldi barna sinna. Uppeldi og velferð barna er ábyrgð foreldra og virða þarf rétt barna til að njóta samvista við foreldra sína.

Stöðu landsbyggðarinnar verður að styrkja með róttækum kerfisbreytingum og valddreifingu til að treysta byggð. Afar brýnt er að bregðast við fólksflótta frá landsbyggðinni, fyrst af öllu með því að leiðrétta þá fjárhagslegu mismunun sem landsbyggðarfólk býr við í námskostnaði, húshitun og vöruverði. Fjölbreytt atvinnulíf og öflug menningarstarfsemi ásamt traustri samfélagsþjónustu og góðum skólum er undirstaða lífvænlegrar byggðar. Slíku verður ekki náð fram með einkavæðingu og einkarekstri í undirstöðuþáttum velferðarkerfisins, sem bitnar harðast á dreifðum byggðum. Skilgreina þarf hvaða undirstöðustofnanir samfélagsins eigi að lúta lýðræðislegum yfirráðum almannavaldsins.

Til þess að ná fram þessum markmiðum þarf að setja valdi fjármagns og markaðsafla skorður, tryggja réttláta tekjuskiptingu og lýðræðislega stjórnarhætti. Forgangsverkefni er að 40 stunda vinnuvika dugi til eðlilegrar framfærslu þannig að tryggja megi fulla atvinnu og rjúfa víta­hring lágra launa og vinnuþrældóms. Búa verður þannig um hnúta að allt verkafólk sem starfar á Íslandi njóti sömu kjara, hvaðan sem það kemur til að stunda hér vinnu sína.

Kvenfrelsi

Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur að Ísland eigi að vera öflugur málsvari félagslegs réttlætis um allan heim. Hreyfingin vill samfélag þar sem bæði konur og karlar fá notið sín og hafnar því að fólki sé mismunað eftir kyni. Réttlátt samfélag er hagur allra - bæði kvenna og karla. Til þess að fullt formlegt og félagslegt réttlæti náist þurfa karlar að afsala sér forréttindum sem þeir hafa tekið í arf.

Kynjafræði eiga að vera sjálfsagður hluti af skólakerfinu. Forsenda kynjajafnréttis er að uppfræða komandi kynslóðir um ástandið í samfélaginu og hvetja ungt fólk til að lagfæra misréttið.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur mikilvægt að laun séu ákvörðuð með tilliti til þess sem leyst er af hendi en ekki því hvort karl eða kona vinnur verkið. Tryggja verður kynjunum jafna möguleika til framfærslu og viðurkenna að samfélagið fær ekki staðist án vinnuframlags kvenna. Öflugt velferðarkerfi er ein af lykilforsendum kvenfrelsis. í slíku velferðarkerfi er ekki gert ráð fyrir ólaunaðri umönnun kvenna heldur er vinnuframlag þeirra innan kerfisins metið til launa.

Líkaminn má aldrei verða söluvara. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill að kynferðislegt sjálfstæði kvenna verði viðurkennt og telur að konur eigi skýlausan rétt til að ráða yfir eigin líkama, þar með talið að taka ákvarðanir um barneignir.

Stjórnvöld eiga að vera skuldbundin til að tryggja konum og börnum öryggi gegn öllu ofbeldi og þeim ber jafnframt að tryggja að kynferðisofbeldi sé meðhöndlað sem lögbrot og karlar kallaðir til ábyrgðar. Kynferðisofbeldi birtist m.a. í nauðgunum, sifjaspellum, klámi, vændi, mansali, kynferðislegri áreitni og líkamlegu og andlegu ofbeldi gegn konum og börnum inni á heimilum þeirra.

Konur eru fátækasti hluti íbúa jarðar og stríð bitnar ekki síst á þeim og börnum. Brýnt er að veita konum öryggi, sýna þeim samstöðu og taka tillit til kynferðis við alla þróunaraðstoð. Viðurkenna verður mikilvægi kvenna í framþróun þriðja heimsins.

Samfélag og atvinnulíf

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill efla samfélagsþjónustu og velferðarkerfi og tryggja að fjárhagsleg staða fólks skerði aldrei möguleika þess til að njóta opinberrar þjónustu og félagslegs öryggis. Meginstoðir velferðarkerfisins eiga að heyra beint undir ríki og sveitarfélög. Efla þarf umræðu um siðferðisleg gildi í stjórnmálum og opinberu lífi. Auðvelda þarf aðgang að upplýsingum en jafnframt tryggja persónuvernd sem aldrei má fórna á altari tækniþróunar og viðskipta.

Leggja verður allt kapp á að bæta aðstöðu fjölskyldunnar og auka möguleika fólks með ung börn til samveru. Þannig má treysta bönd fjölskyldunnar, vinna gegn upplausn heimila og sókn ungmenna í fíkniefni. Draga verður úr tekjutengingu og jaðaráhrifum í skattkerfinu og almannatryggingum. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill styrkja stöðu launafólks til að beita samtakamætti sínu í þágu kjara- og réttindabaráttu og til að hafa meiri áhrif á þróun samfélagsins en það hefur nú.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill beita sér fyrir því að atvinnulífið þróist í átt til aukinnar fjölbreytni og nýti umhverfisvæna tækni. Sérstaka áherslu ber að leggja á stuðning við fjölbreytta nýsköpun, vöxt og viðgang lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Atvinnufyrirtæki eiga að greiða eðlilega hlutdeild af hagnaði sínum í sameiginlega sjóði ríkis og sveitarfélaga. Koma verður í veg fyrir óhóflega gróðasöfnun í skjóli einokunar eða fákeppnisaðstöðu einstakra fyrirtækja og skattleggja sérstaklega gróða sem sprettur af nýtingarrétti atvinnurekenda á sameiginlegum auðlindum. Mikilvægt er að hefðbundnir atvinnuvegir, einkum við sjávarsíðuna og í sveitum landsins, þróist í sátt við samfélagið og verði til styrktar byggð í landinu öllu. Nýta ber sérstöðu Íslands og íslenskar auðlindir ásamt tækni og þekkingu til að skapa landsmönnum störf í fjölbreyttu og þróuðu atvinnulífi en varast ber að einblína á allsherjarlausnir og einstaka stóriðjukosti.

Sjálfstæð utanríkisstefna, félagsleg alþjóðahyggja

Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á að móta sjálfstæða íslenska utanríkis- og friðarstefnu. Ísland á að standa utan hernaðarbandalaga og hafna aukinni vígvæðingu. Íslendingar eru best settir án hers, hvort sem hann er innlendur eða erlendur. Brýnt er að friðlýsa landið og lögsögu þess fyrir kjarnorku- sýkla- og efnavopnum og banna umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Beina verður aukinni athygli að umhverfisöryggi og vernda hafið fyrir úrgangi frá kjarnorkuverum og herstöðvum.

Við viljum efla starfsemi Sameinuðu þjóðanna og styrkja lýðræðislega starfshætti á vettvangi þeirra. Treysta ber stoðir þjóðaréttar í þágu friðar og mannréttinda og stuðla að aukinni þátttöku almennra félagasamtaka í stefnumörkun alþjóðamála. Íslensk stjórnvöld eiga að beita sér fyrir alþjóðlegum samningum um afvopnun og takmarkanir á vígbúnaði. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill efla þátttöku Íslands í stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar sem öll ríki eiga aðild, svo og í stofnunum eða samtökum eins og Noðurlandaráði, Evrópuráðinu og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu.

Ísland á að styðja eindregið markmið Sameinuðu þjóðanna og ákvæði mannréttindayfirlýsingarinnar með því að leggja sitt af mörkum til að útrýma fátækt og hungri, félagslegu ranglæti, misskiptingu auðs, kynþáttamismunun, mannréttindabrotum og hernaðarhyggju. Íslendingar eiga að stórauka framlög sín til þróunarstarfs og leggja fátækum þjóðum lið á alþjóðavettvangi. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill efla samstarf allra þjóða heims á grundvelli jafnréttis og gagnkvæmrar virðingar fyrir ólíkum skoðunum og menningu. Nauðsynlegt er að réttur allra jarðarbúa til að njóta góðs af framförum í heilbrigðisvísindum verði viðurkenndur og virtur.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill tefla félagslegri hnattvæðingu fram gegn hinni kapítalísku hnattvæðingu samtímans og vinna að friðsamlegri sambúð þjóða, fullum mannréttindum, kvenfrelsi, velferð og jöfnuði allra jarðarbúa. Koma verður með sérstakri skattlagningu eða alþjóðlegum reglum í veg fyrir spákaupmennsku með fjármagn heimshorna á milli. Við teljum að öll ríki heims eigi að hafa óskoraðan rétt og tækifæri til að nýta auðlindir sínar á skynsamlegan hátt í því augnamiði að byggja upp velferðasamfélög sem standast kröfur um sjálfbæra þróun. Til þess að svo megi verða þarf að leysa hinar fátækari þjóðir af skuldaklafa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans, og endurskoða starfsemi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar frá grunni. Leikreglum heimsviðskipta þarf að gerbreyta til að tryggja félagslegt jafnrétti og virðingu fyrir öllu umhverfi.

Samskipti við Evrópusambandið ber að þróa í átt til samninga um viðskipti og samvinnu, m.a. á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og umhverfismála. Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað. Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð lýsir stuðningi við hvers kyns friðsamlega baráttu fyrir félagslegu réttlæti án landamæra og jafnframt vilja sínum til að taka þátt í þeirri baráttu hérlendis sem erlendis"

 

Þannig lítur stefnuskrá Vinstri Grænna út, kannski þeir ættu að fara að lesa stefnuskrána og hefja hana aftur til virðingar, vegna þess að hún lítur ágætlega út. 


mbl.is Nefndin fundar daglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Svo datt mér í hug að kíkja á síðu Samspillingarinnar og fann ég þetta þar.  "

Jafnaðarstefnan

Stefna Samfylkingarinnar grundvallast á jafnaðarstefnunni sem lagt hefur grunninn að velferðarsamfélögum Norðurlandanna og Norður Evrópu. Á sama tíma og bæði forsjárhyggja ríkisrekins áætlunarbúskapar og afskiptaleysi og markaðstrú nýfrjálshyggjunnar hafa beðið skipbrot á örfáum árum standa samfélög byggð á jafnaðarstefnunni sterkust.

Í velferðarsamfélögum jafnaðarstefnunnar er jöfnuður meiri en annars staðar og atvinnulífið jafnframt samkeppnishæfast. Við Íslendingar líðum nú fyrir að hafa sveigt af leið hinna norrænu velferðarsamfélaga árum saman með dýpri kreppu, meira atvinnuleysi og víðtækara fjármálahruni en flest nágrannalönd okkar. Vegna þessa á jafnaðarstefnan enn brýnna erindi en áður og mikilvægt að hún verði leiðarljósið við endurreisn efnahagslífs, stöðugleika, velferðar og bættra lífskjara.

Heimskreppan sem nú geisar og afleiðingar hennar staðfestir einnig að fullveldi ríkja og hagsæld er best tryggð með náinni samvinnu við aðrar þjóðir, hvort sem er vegna eftirlits með fjármálastarfsemi, viðbragðsáætlana vegna yfirvofandi hættu eða að eiga alþjóðlega mynt og öflugan seðlabanka að bakhjarli. Sú stefna Samfylkingarinnar að hagsmunum Íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins og með evruna sem mynt á nú meira erindi en nokkru sinni.

Ég verð að segja að ég er sammála flestu hjá Vinstri Grænum og flestu hjá Samspillingunni nema ESB og Evru kjaftæðinu. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.8.2010 kl. 00:55

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já svona er þetta, það stendur nú varla steinn yfir steini í framkvæmdum á þessum stefnum þeirra eða hvað?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2010 kl. 08:56

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Nei ekki er jafnaðarhugsjónin að þvælast fyrir Samspillingunni, og  orðin í stefnu Vinstri Grænna "Við teljum að öll ríki heims eigi að hafa óskoraðan rétt og tækifæri til að nýta auðlindir sínar á skynsamlegan hátt í því augnamiði að byggja upp velferðasamfélög sem standast kröfur um sjálfbæra þróun. Til þess að svo megi verða þarf að leysa hinar fátækari þjóðir af skuldaklafa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans, og endurskoða starfsemi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar frá grunni. Leikreglum heimsviðskipta þarf að gerbreyta til að tryggja félagslegt jafnrétti og virðingu fyrir öllu umhverfi."  Bara svona til þess að nefna dæmi úr stefnuskránum.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.8.2010 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband