3.2.2011 | 02:37
Ég vona að hönnuðir mbl.is verði reknir
Þessi breyting á forsíðu mbl.is er til skammar. Landsbankinn sem lagt hefur undir sig hálfa forsíðuna er greinilega þóknanlegur Davíð Oddsyni, annars hefði þessi breyting ekki orðið.
Thorsararnir hafa greinilega ennþá ítök á mogganum. Það vefst ekki fyrir mbl.is hverjir eiga ennþá peningana. Ég skammast mín fyrir það að vera ennþá moggabloggari, en batnandi mönnum er best að lifa.
Ég vona að þetta sé í síðasta skiptið sem ég blogga hérna á huxa.blog.is.....
Athugasemdir
Nýja útlitið er óþægilegt, en ef það eru auglýsingarnar sem fara mest í taugarnar á þér mæli ég með Opera vafranum sem er með innbyggða auglýsingasíu, eða ná þér í viðbót við vafrann þinn. Adblock Plus gagnast mér vel í Firefox.
Axel Þór Kolbeinsson, 3.2.2011 kl. 08:56
Já ég er einmitt að taka inn Óperu, hnökrar á því ennþá, en ætla að fara þangað. Ég vona aftur á móti Jóna Kolbrún mín að þú farir ekki héðan. Þrátt fyrir allt kann ég vel við þetta svæðí, svo er hægt að vera á tveim stöðum eins og sumir hafa gert.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2011 kl. 17:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.