27.4.2011 | 01:52
Sorglegt dæmi
Ég er ekki sammála þessum Kristni Skúlasyni, að kaupmáttur launþega sé svipaður og hann var árið 1995.
Ég helda að fara þurfi aftur til 1982-1983 til þess að finna svipaðan kaupmátt og við erum að upplifa núna árið 2011.
Ég er búin að vera húsmóðir í rúm 30 ár og man ég ekki eftir svona slæmu árferði síðan árið 1982 eða 1983.
Eignaupptakan sem fólk á mínum aldri hefur orðið fyrir undanfarin 30 ár er með ólíkindum, það er ábyggilega heimsmet hversu miklu við íbúðareigendur höfum tapað vegna verðtryggingarinnar.
Það á ábyggilega eftir að dæma þennan þjófnað ríkisins frá íbúðareigendum ólöglegan. Af alþjóða dómstólum.
Ísland eins og það var 1995 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enda er hann ekki að tala um kaupmátt, heldur neyslumynstur.
Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 27.4.2011 kl. 07:13
Neyslumynstur fer eftir kaupmætti hverju sinni.
Aðalbjörn Steingrímsson, 27.4.2011 kl. 11:25
Sífellt fleiri detta niður gegnum öryggisnet ríkisstjornarinnar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.4.2011 kl. 11:25
Neyslumynstrið miðast við að nurla saman hverri krónu til að geta greitt af þessum klikkuðu lánum og leyfa sér fátt.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 27.4.2011 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.