1.12.2007 | 02:52
Ég er áhugamanneskja um tungumál
Ég er búin að dunda mér við að læra finnsku í 6 ár og er farin að bjarga mér ágætlega, bæði í talaðri og skrifaðri finnsku. Ég hef notað netið og irkkið til að læra finnskuna, svo á ég nokkra finnska vini í dag sem hjálpa mér mjög mikið. Ég er í e-mail sambandi við tvo finna sem eru bæði frábærir vinir. Ég þarf ekki að kaupa mér gistingu þegar ég heimsæki Finnland, ég sef heima hjá vinum mínum. Svo horfi ég á sápuóperur frá suður-Ameríku á morgnana á stöð 2 og er ég farin að skilja ýmsa frasa á spænsku. My gorda bella og ser bonita no basta og þessi nýja, eru alveg ágætar sápur. Í dag get ég bjargað mér á ýmsum tungumálum sem kemur sér vel í vinnunni minni á barnum. Finnar hafa oft orðið kjaftstopp þegar ég tala finnsku við þá, ég hef verið spurð hvort ég sé finnsk og tek því sem hrósi fyrir frammistöðuna. Í dag get ég bjargað mér á 6 tungumálum og vonandi verður spænskan mitt sjöunda tungumál sem ég get tjáð mig á og þar á eftir langar mig að læra þýsku, þó að ég kunni ýmsa frasa á þýsku get ég lítið talað hana sjálf í dag. Ein alþjóðleg
Hyvää yötä=Góða nótt
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.