26.2.2008 | 01:38
Svefnpurkka!
Það fór nú ekki vel hjá mér í gærkvöldi, ég ætlaði að horfa á Óskarinn fram eftir nóttu. En vitið þið hvað, ég byrjaði að horfa, svo vaknaði ég í sófanum um fjögur leitið og fór inn í rúm að sofa. Ég sá bara nokkrar afhendingar, þetta hlýtur að hafa verið leiðinleg útsending fyrst ég sofnaði sitjandi í sófanum mínum
Ég er nú yfirleitt vakandi til 3 eða lengur á hverri nóttu, Óskarinn svæfði mig eins og ungabarn ótrúlega fljótt. Ein sem var kannski ótrúlega þreytt í gær
Athugasemdir
Missti meðvitund næstum strax og ég kom heim úr vinnu í gærkvöldi oer glaðvakandi núna. ætla bara á fætur
Hólmdís Hjartardóttir, 26.2.2008 kl. 06:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.