Ég er orðin spennt

Næsta laugardagskvöld er árshátíð Suomifélagsins haldin á Hallveigarstöðum við Túngötu.  Allir eru velkomnir sem hafa áhuga.  Woundering Ég hlakka til

. Árshátíð 1. mars - munið daginn og takið með ykkur gesti!Árshátíðin verður laugardaginn 1. mars í salnum á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík  - og hefst hún kl. 19.00. Eftir fordrykkinn hefst borðhald með veislukosti Sigurbergs. Á matseðlinum verður graflax með sinnepssósu, maríneraður fiskur, kryddlegið hjartarkjöt og fylltur lambahryggur. Á eftir er kaffi og konfekt. Hvað viljið þið hafa það betra?!  Gestir okkar frá Finnlandi að þessu sinni verða tvær konur frá Björneborg (Pori), Marjatta Tuhkanen sem ávarpar samkomuna sem segir frá því  hvernig hún varð Íslandsvinur og frá væntanlegri heimsókn kórsins Porin Laulajat hingað í sumar og söngkonan Tuula Majasaari sem syngur nokkur vinsæl sönglög eftir Oskar Merikanto og lög úr óperettum. Undirleikari verður Bjartur Logi Guðnason. Þegar líður á kvöldið verður opinn bar og efnt til happdrættis að vanda.  Margir vinningar verða í boði. Miðaverð kr. 4500. Öllum er heimil þátttaka og skorað er á félagsmenn að fjölmenna og taka með sér gesti til að gera hátíðina sem líflegasta. 

                      Vegna undirbúnings þarf að tilkynna þátttöku sem fyrst og í síðasta lagi miðvikudaginn 27. febrúar. Látið einhvern eftirtalinna vita: Hjört (s. 554 3520 / 554 2663 / 869 4764 eða netfangið hjorturp@hi.is), Hannes (s. 565 2354 / 896 1494 eða netfangið hannesol@islandia.is), Grétu (s. 554 0529 / 899 4529 eða netfangið gretab@simnet.is), Piret (s. 551 0419 eða netfangið piret@simnet.is)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Hvað er þetta Suomifélag ?

Linda litla, 27.2.2008 kl. 02:21

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Suomi er Finnland á finnsku.  Ætli það sé ekki vinafélag Finnlands og Íslands

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.2.2008 kl. 02:32

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Okey, fyrst tengdi ég þetta við japönsku glímukappana  - en það var áður en ég hristi hausinn tvisvar.... (hvað heitir það aftur annars, þessi þungavigtarglíma í Japan, þar sem þeir eru í svörtum "bleyjum"?)

Ég er einmitt að fara út á laugardagskvöld - kannski sjáumst við einhversstaðar, t.d. á Vínbarnum? Það gæti verið gaman  

Lilja G. Bolladóttir, 27.2.2008 kl. 03:22

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þeir japönsku eru eru Sumo glímukappar

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.2.2008 kl. 03:25

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

hah? Hvar er vínbarinn?  Ég vinn bara á bar en fer sjaldan á aðra bari

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.2.2008 kl. 03:26

6 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

En þú ert að fara út á laugadagskvöldið, er það ekki? Vínbarinn er eiginlega á móti Dómkirkjunni, rétt hjá Alþingishúsinu og Eggerti Feldskera.... anyway, það er bara einn bar þar, svo þú hlýtur að finna hann

Lilja G. Bolladóttir, 27.2.2008 kl. 04:27

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góða skemmtun. Vinn til 10 á laugardagskvöldið, aldrei að vita hvað maður gerir eftir það......í svona veðri fer ég undir teppi

Hólmdís Hjartardóttir, 27.2.2008 kl. 06:14

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég kíki kannski á Vínbarinn, ef ég fer í bæinn eftir árshátíðina

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.2.2008 kl. 11:02

9 Smámynd: Brynja skordal

Matseðillin lítur vel út En góða skemmtun á laugardagskvöld

Brynja skordal, 27.2.2008 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband