Óvæntir matargestir, hvað er verra?

Óvæntir matargestir.  Ég lenti í því í gær að fá dóttur mína, kærastann hennar og tvö barnabörn óvænt í mat.  Ég var svo fyrirhyggjusöm að ætla að elda mat sem átti að duga okkur í tvo daga.  Ég eldaði hrygg, með kartöflum og sveppasósu.  Vegna þess að ég verð að vinna á morgun ætlaði ég að gera kássu til að hita í örbylgjuofninum.  Þegar við vorum búin að borða var innan við helmingur af mínum stóra hrygg ennþá ósnertur.   En þá varð slysið, kærasti dóttur minnar skrapp fram í eldhús og át allt kjötið sem eftir var á hryggnum. Ég sá fyrir mér “ Föstudaginn langa” og ekkert til að borða á heimilinu.  En sem betur fer fór elsta dóttir mín í verslunarleiðangur og keypti mat handa okkur til að borða á morgun, og eldaði hann meðan ég var í vinnunni í kvöld.  Woundering Ein sem sveltur ekki á föstudaginn langa

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Eru þetta ekki þá góð meðmæli um að maturinn hjá þér er ÆÐISLEGURfrá tengdasyni,en dóttirin hugulsöm að redda öllu svo þú hafir nú eitthvað í svanginn á morgunn.kv.linda vinkona

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.3.2008 kl. 23:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband